Ađalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ţuríđur Ţorsteinsdóttir
  • Atvinna: lćknanemi í Debrecen
  • Annađ: Nýja númeriđ mitt í Ungverjalandi (íslensk landlína :)); 4960540 gemsinn minn er: +3670 405 3618

Leikur dagsins

Textareitur



próf!!!!!!!!!

08. nóvember 2007 klukkan 17:32
Já það er alltaf verið að kvarta við mig um bloggleysi, ég skal reyna að herða mig í þessum málum.
Verst að þegar ég loksins sest niður til að blogga þá bara man ég ekkert hvað á daga mína hefur drifið upp á síkastið.

Í gærkvöldi var ég allavega í stóru miðannar prófi í biophysics, búin að vera soldið lost síðustu daga þar sem ég hef verið upp á bókasafni alla daga að reyna að þræla þessu inn í hausinn á mér.
Margir voru óánægðir með þetta próf, ég er ekki alveg viss hvað mér fannst.... það kemur í ljóst bráðum allavegana.. ég veit að aukakennarinn okkar mun gráta sig í svefn ef við náum ekki, hann tekur þessu svo alvarlega!!
Svo er annað próf í efnafræði á þriðjudaginn, öll organic efnafræðin, ætla rétt að vona að ég muni eitthvað úr því, þar sem ég er ekki byrjuð að læra... úfff..
Eins og margir vita þá er ég með fóbíu fyrir að halda fyrirlestra, en ætla að vera með fyrirlestur sem er ekki einu sinni skylda (maður fær reyndar aukastig á prófi, veitir ekki af..) þessu á ég sjálf erfitt með að trúa! Smá stress þar sem kennarinn er búinn að vera að grilla nemendur illilega í þessum fyrirlestrum, veit ekki alveg hvað ég er að spá haha....

Annars kláraðist þetta góða prófa klukkan 10 í gærkveldi, þá ákváðum við bekkjarsystkinin að kíkja á skóladjamm, í dúnúlpum og með skólatöskur, það er mjög töff.

Það er greinilega að koma vetur hér í bæ. Laufin öll að hrynja, krákurnar komnar og kuldinn nístir inn að beini. Bærinn fer bráðum að vera eins og Transilvanía 1950.

Mér sýnist það verði ekki mikið um merkilegt blogg þangað til í janúar, læra, borða, sofa, borða, djamma, borða, læra... sirka svona... ekkert það hressandi  hahaha...

hello hello

01. nóvember 2007 klukkan 17:05
Allrighty then.....
Hérna kemur ný færsla.... :)
Og ég setti meirað segja inn nýjar myndir frá Halloween partýinu í gær !!!
check it ;) :
http://picasaweb.google.com/Thurapura/HalloweenParty

Jámm... ég er búin að fara til Búdapest, fór með Auði,Magga og mömmu Auðar, Það var hin mesta snilld. Set inn myndir seinna. En þetta var svo falleg borg, hefði bara ekki dottið það í hug. Við lifðum eins og kóngar bara, fórum á fínasta stað bæjarins og borðuðum bara besta mat sem ég hef smakkað, fórum á frábæran underground klúbb/karoeki bar ;) ... sightseeing, þvílíkar byggingar og svo var auðvitað H og M þarna og Zara.
Ég verð að drífa mig þangað fljótlega aftur. it's addicting ;)

Svo eru búin að vera próf, statistic, Efnafræði, Latína og Biophysics er að koma í næstu viku, hef náð öllu so far, húrra húrra :)

Partýið í gær var afar skemmtilegt, þangað til brutust út slagsmál, og annar partýhaldarinn steig í glerbrot og dreifði blóðpollum um allt hús... Fólk var frekar duglegt að mæta í búningum og svona, ég fór sem svín, þó fólk hafði ekki alveg verið að ná því, ég tek það fram að ef þið skoðið myndirnar þá er ég ekki kú ;)

Lífið gengur bara sinn vanagang, það eru búnir að vera fullt af frídögum núna hér í Ungverjalandi, ekki spyrja mig af hverju, en við fáum allavega frí í skólanum, vúhú, frí í dag og á morgun... og ég nýti þá auðvitað í eitthvað productive eins og að blogga og hanga á facebook og svona :)

Ég bara man ekkert lengur hvað ég ætlaði að skrifa, ef þið viljið fá einhverjar ýtarlegri fréttir af mér, þá verðiði bara að hringja.... þið vitið the digits ;) (4960540)

P.s. Elsku besti brósi til hamingju með daginn í gær!! og Mamma þann 22 og systa 27 og pabbi, tilvonandi til hamingju með afmælið þann 11 nóv!!! :*

XXXXXXXXXXXXXXX

hvađ er nýtt....

16. október 2007 klukkan 13:39
Ok, ég kláraði fyrsta prófið í dag, gekk sæmó. Það var efnafræði og byrjaði klukkan 6:45 í morgun, það kalla ég ókristinlegan tíma, guð minn góður.
Gas elda vélin bilaði og ég sjálf skrúfaði bakarofninn úr innréttingunni og reif hann út til þess að rífa gasið úr sambandi, maður er orðinn svaka handyman hérna, skrúfandi saman húsgögn og lagandi eldavélar jájá

Mamma Auðar og tvíburasystir hennar eru í heimsókn, með í för var kærkominn appolló lakkrís. Við fórum út að borða á fínasta steikhús bæjarins (sem kostaði bæ the way 1500 á mann) sem er ekki í frásögur færandi nema hvað Ausa fékk sér í eftirrétt.
Við fengum kaffi og súkkulaði, en á auðar diska var dáldið sérstakur kexbiti sem Auður ákvað nú að smakka á og japplaði svoldið á þessu. Þetta reyndist hins vegar vera flaga úr múrstein fyrir ofan okkar sem var sirka 200 ára....

haha... æææ já það var mjög fyndið þegar hún áttaði sig á því hvað hún væri að borða!!

Það er orðið pínsu kalt, mar er farinn að nota úlpu bara. En það er nú bara rómantískt, laufin eru rétt að verða gul og rauð, því fallegasta haust veður.

MYNDIR

12. október 2007 klukkan 16:28
Þá er ég búin að setja inn djamm myndir!!! Þær eru aðallega frá busadeginum í skólanum og eru ekki fyrir viðkvæma....enjoy :)

http://picasaweb.google.com/Thurapura/DjammDebrecen

FACEBOOK

10. október 2007 klukkan 12:57
Facebook, facebook.... guð hvað er hægt að verða húkt á henni..........á sama tíma og hún gerir mann brjálaðan hahaha........  Allar þessar applications sem vilja að maður geri hitt og þetta við vini sína.
Áðan sendi ég fullt af fólki sem ég þekki ekki neitt fjöður og kitl....eins og ég hefði kitlað það, gerðist bara sjálfkrafa ... þvílíkt krípí og vírdólegt að fá allt í einu kitl frá einhverjum sem maður þekkir ekki neitt haha............aaaa

halló

03. október 2007 klukkan 13:32

 Ég þarf að fara að læra ungversku. Sú gamla hérna við hliðina er alltaf að blaðra við mig á ungversku, ég tala bara íslensku á móti, hún blaðrar og blaðrar hálf tannlaus og sæt og hlær bara.... Þegar við erum búnar að bulla við hvor aðra í nokkrar mínútur fer hún bara og nær í kjúkling og réttir mér eða sérrí haha... var úti að hengja upp þvott áðan, þá kemur hún með fullt glas af rótsterku sérrí handa mérklukkan 2 á skóladegi... já já maður á bara helst að vera staupa sig allan daginn haha...
Nú fer annars að koma að prófum.... framundan er medical latin próf, statistics, og efnafræðipróf, gaman gaman!!
Fékk nú annars verklega efnafræði metna og vonandi bóklega líka... en er ennþá að bíða eftir svari eftir rúman mánuð... maður getur nú ekki sagt að Ungverjar séu mikið að flýta sér!!
Best að reyna að læra eitthvað, er að reyna að lesa Biophysics bók sem var skrifuð á tímum kalda stríðsins sýnist mér, frábært alveg hreint!!

Bæ í bili!!!

xxx

Skírn í Debrecen Medical school í gćrkveldi.... svakalegt kvöld

30. september 2007 klukkan 19:56








Ungverjar.........

27. september 2007 klukkan 18:10
Æ þeir eru nú svoldið fyndnir.....haha....
Enskan þeirra er nú ekki upp á marga fiska, og greinilega halda að matarvenjur okkar Íslendinga séu soldið spes...
Við fórum út að borða í gærkvöldi og ég og Rut pöntuðum okkur Hvítlauksbrauð......
Þjónninn var ekki alveg að skilja....... Hann kom með körfu fulla af ristuðu brauði og skál fulla af ferskum hvítlauksgeirum haha......mmm  ...það var ljúft að narta í ferskan hvítlaukinn með þurra brauðinu!

If you can't beat them.....

24. september 2007 klukkan 14:32
Já ég keypti mér bara stolið hjól áðan. Það er ljótt stráka hjól og kostaði 3 þúsund kall :) Lásinn kostaði líka 3 þúsund :), traustasti lásinn í búðinni...then again...þá selja þeir stolin hjól ;)
Ég gleymdi hins vegar að ég væri komin aftur á hjól í skólanum áðan og tók trammann heim. Nenni svo innilega ekki að fara upp í skólann að sækja hjólið núna! krossa bara fingurnar fyrir þennan góða lás :)

Allt er líka gott að frétta, héldum partý heima á föstudaginn, ég veit eiginlega ekki hvað komu margir, en var allavega fullt útúr dyrum, það var mjög gaman að þrífa klístrug gólf á laugardaginn! Gamla konan við hliðina brosti ekkert rosa fallega til okkar heldur ... en ég skemmti mér samt konunglega :)
Um helgina er ég búin að vera í aukatíma, reyna að læra, fara í fótbolta með íslensku stelpunum (spilaði seinast í  leikfimi í Hlíðaskóla þegar ég var 9 ára).... horfa á sjónvarpið okkar í fyrsta skipti (já við erum ekki með kabal bara bilað dvd tæki haha)

Ég er farin að fá mér ís, það er steikjandi hiti mmmmmm...gottgott

Í nótt...

20. september 2007 klukkan 19:30
Hjólunum okkar var stolið!!! Gypsy people!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ţura kemur heim í jólafrí! ....OK ég veit ţetta er orđiđ meira svona janúar frí ;)

Könnun

Ćtlar ţú ađ koma og heimsćkja mig ????

Nýjast á HumorPix

Funny Images, A morning of awkwardness Funny Images, Vintage beer ad Funny Images, Smart Kid Funny Images, Keeping the Book Open Funny Images, Santa is real Funny Images, Lingerie soda design

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...