Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Þuríður Þorsteinsdóttir
  • Atvinna: læknanemi í Debrecen
  • Annað: Nýja númerið mitt í Ungverjalandi (íslensk landlína :)); 4960540 gemsinn minn er: +3670 405 3618

Leikur dagsins

Textareitur



fyrst að maður er nú byrjaður....

23. nóvember 2008 klukkan 21:17

Fyrst að ég er byrjuð að blogga aftur er best að halda sér við efnið :)
Það skemmtilegast og besta sem hefur drifið á daga mína upp á síkastið er að mollið nýja er búið að opna, ójá og stóðst meira en allar væntingar. 2 hæða H og M, Sara, New Yorker, Mango, C and A, Vagabond, og fleira sem veldur mér mikilli gleði... Ekki það að ég hafi endilega margar forintur til að kaupa mér eitthvað þegar maður er búin að skipta íslensku krónunni, en mér er alveg sama, það er bara nóg að horfa...

Já og talandi um mollið þá vorum við að versla í matinn og búin að vera að vanda okkur voða að velja í matinn og búin að hanga þarna inni í hálftíma, og alveg að fara að borga, eða réttara sagt var Anders í röðinni og ég inni í búðinni að sækja eitthvað, alltí einu kemur starfsmaður hlaupandi til mín og hrópar eitthvað á ungversku, ég vissi náttlega ekkert hvað hún var að segja, fyrst datt mér í hug að hún væri að saka mig um að stela, svo hrópaði hún bara kika kika, og þar sem kika er húsgagnabúð hér í bæ þá hugsaði ég með mér hvort ég hefði kannski unnið eitthvað gjafabréf í henni....
En svo áttaði ég mig á því að konan var óvenju æst fyrir það eitt að ætla að gefa mér gjafabréf og svo þegar ég leit í kringum mig sá ég að ég var ein í búðinni...hmmm já...haha... Þá var barasta sprengjuhótun í mollinu og allir flúðu út, þetta var afar dramatískt....
Þannig að við þurftum að skilja bara allan matinn okkar eftir og hlaupa út...
Mollið opnaði bara svo ekkert aftur þetta kvöld þannig að við neyddumst til að fara heim með engan mat og panta japanskan í 40 skiptið á þessari önn :)
Og by the way þá sprakk engin sprengja, ímynda mér að einhver fúll starfsmaður hafi verið að reyna að komast snemma heim eða eitthvað...

Annars er bara smákökubakstur búinn að vera á dagskrá, smá djamm og smá lær....mikið sof...
Sennilega mun meira spennandi lífið heima akkurat núna, hversvegna eru allir hættir að blogga??

Skrifa athugasemd

Þura kemur heim í jólafrí! ....OK ég veit þetta er orðið meira svona janúar frí ;)

Könnun

Ætlar þú að koma og heimsækja mig ????

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Lingerie soda design Funny Images, I wish my wife was this dirty Funny Images, Color names Funny Images, Winter shorts Funny Images, Sunkist Funny Images, Try at least candies

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...