fyrst að maður er nú byrjaður....
Fyrst að ég er byrjuð að blogga aftur er best að halda sér við efnið :)
Það skemmtilegast og besta sem hefur drifið á daga mína upp á síkastið er að mollið nýja er búið að opna, ójá og stóðst meira en allar væntingar. 2 hæða H og M, Sara, New Yorker, Mango, C and A, Vagabond, og fleira sem veldur mér mikilli gleði... Ekki það að ég hafi endilega margar forintur til að kaupa mér eitthvað þegar maður er búin að skipta íslensku krónunni, en mér er alveg sama, það er bara nóg að horfa...
Já og talandi um mollið þá vorum við að versla í matinn og búin að vera að vanda okkur voða að velja í matinn og búin að hanga þarna inni í hálftíma, og alveg að fara að borga, eða réttara sagt var Anders í röðinni og ég inni í búðinni að sækja eitthvað, alltí einu kemur starfsmaður hlaupandi til mín og hrópar eitthvað á ungversku, ég vissi náttlega ekkert hvað hún var að segja, fyrst datt mér í hug að hún væri að saka mig um að stela, svo hrópaði hún bara kika kika, og þar sem kika er húsgagnabúð hér í bæ þá hugsaði ég með mér hvort ég hefði kannski unnið eitthvað gjafabréf í henni....
En svo áttaði ég mig á því að konan var óvenju æst fyrir það eitt að ætla að gefa mér gjafabréf og svo þegar ég leit í kringum mig sá ég að ég var ein í búðinni...hmmm já...haha... Þá var barasta sprengjuhótun í mollinu og allir flúðu út, þetta var afar dramatískt....
Þannig að við þurftum að skilja bara allan matinn okkar eftir og hlaupa út...
Mollið opnaði bara svo ekkert aftur þetta kvöld þannig að við neyddumst til að fara heim með engan mat og panta japanskan í 40 skiptið á þessari önn :)
Og by the way þá sprakk engin sprengja, ímynda mér að einhver fúll starfsmaður hafi verið að reyna að komast snemma heim eða eitthvað...
Annars er bara smákökubakstur búinn að vera á dagskrá, smá djamm og smá lær....mikið sof...
Sennilega mun meira spennandi lífið heima akkurat núna, hversvegna eru allir hættir að blogga??
Jei blogg í fyrsta sinn í hálft ár, húrra fyrir mér :)
Ég lofaði víst pabba (þeim eina sem kíkir á bloggið mitt ;)) að senda eins og eina blogg færslu:)
Ungverjaland er nú ekki búið að vera neitt sérstaklega vinalegt það sem af er þessari önn, en það á auðvitað sýnar góðu hliðar sem saman standa af afar góðu veðri og ódýrum bjór sem er ekki slæmt í kreppu haha..
Jæja en hérna koma samt smá skammir:
Fyrst og fremst var framkvæmt voðaverk hér fyrir nokkrum vikum. Kanikkus kanína var myrtur hér á svölunum. Hann var alltaf í holunni sinni á svölunum á nóttunni, og nágrannarnir fyrir ofan vissu það greinilega og alveg hvar hann var að finna. Ég vaknaði bara við hræðileg vein, en datt engan veginn í hug að hann gæti framkvæmt svona hræðileg hljóð svo ég fór bara aftur að sofa. Næsta morgun fann ég hann hvergi, og það var svo ekki fyrr en á hádegi að við fundum hann á svölunum við hliðina, hauslausann og morðingjarnir höfðu tekið höfuðið með sér. Hvílikir sadistar, ég bara skil þetta ekki. Ég er nokkuð viss um að þetta er fólkið á hæðinni fyrir ofan þar sem ég fann fullt af blöðum úr gervigrasskreytingunni þeirra á svölunum mínum og heyrði í þeim líka þessa nótt... Þori samt ekki fyrir mitt litla líf að fara upp og tala við þau...fyrst þau eru svona klikkuð veit maður ekki hverju þau taka uppá næst...betra að halda sig bara frá þeim!!!
Næsti Ungverji sem ég hata líka er Gamli landlordinn okkar frá því í fyrra, hann er nú meiri svikahrappurinn. Hann lét okkur aldrei fá kvittanir í fyrra.... því hann var að svíkja undan skatti og lét okkur skrifa undir að við værum að borga minna en við gerðum. Allavega nú heldur hann því fram að við skuldum honum pening sem er bara rugl... hann er náttúrulega búinn að vera að féfletta okkur í heilt ár.
Þegar við komum út lá bara út leitarheimild eftir mér og Rut á skólaskrifstofunni...við gerðum nú ekkert í þessu fyrst. Fyrir 2 vikum komumst við svo að því að hann var bara búinn að fá sér lögfræðing og var bara á leiðinni með okkur fyrir rétt sem er víst hörku vesen. Eftir mikið strögl og fundi með lögfræðingum enduðum við á að semja við hann að borga honum bara fullt af pening svo hann færi ekki með okkur fyrir rétt, þar sem við hefðum örugglega tapað með engar sannanir. Úff maður er nú alveg tekinn í rasskatið hérna...
Eeeeennn fyrir utan þetta er bara búið að vera brjálaður skóli, alveg nóg að gera, endalaus próf með nokkrum hressandi Sopronium inn á milli (besti Ungverski bjórinn ;))
Ein Búdapest ferð eða svo sem var alveg frábær, farið á steikhús og karioki bar sem er alltaf gott fyrir sálina :)
Til að koma með smá gleði inní þessa bloggfærslu þá er H og M búið að opna hér, hvílík dýrð og sæla ...vúhú og nýtt moll opnar í næstu viku með Burger King og Kentucky fried........ H'URRRRRRRA
Eini skyndibitastaðurinn hérna hjá okkur er nefnilega bara Mac D, og ég held að maður hefði farið að þreytast á Big M eftir svona sirka 120asta skiptið sem maður fengi sér hann haha..en allavega en meiri ástæða fyrir fólk að koma í heimsókn til minnar ástkæru Debrecen með yndislegum og vinalegum ungverjum sem gleðin skín af :) :)
Jæja best að halda áfram að skrifa afar hressandi Biochem ritgerð, vona að allir sjái fram úr kreppunni og átti sig á því að hafragrautur er bara ekki svo alslæmur eftir allt saman :)
Bæjó spæjó, ykkar þurapura
Prófin búin, húrra húrra
Myndir!!!!!!!!!!
Próf að byrja...Wish me luck... mér sýnist þessi prófatörn eiga eftir að verða alveg nokkuð margar vikur úfff úfff....
Búdapest myndir:
http://picasaweb.google.com/Thurapura/BDapestMay2008
Kanikkus myndir:
http://picasaweb.google.com/Thurapura/KanikkusAdLeikASvolunumHeima
transvestæ kanína
Kanínan mín kanikka er KARL !!!!! Ég er í sjokki, hvernig get ég kallað hana kanikku núna, hahahaha...
Ég biðst innilega forláts...
Allt er við sama heygarðshornið hér á bæ. Ég er í prófum í hverri einustu viku og þykist vera að reyna að læra eitthvað fyrir þau ... hmmm haha... já já en það er nú samt búið að ganga vel hingað til, er reyndar að fara í hrikalegt Molecular próf á föstudaginn, þetta lið hérna er náttúrulega ruglað með í hversu miklum smáatriðum það vill að við lærum hlutina!
Það var annars komið vor hérna, 15 stiga hiti og lauf og blóm á trén, en í vorskapinu mínu var mér litið út um gluggann hérna á bókasafninu...þvílíkur snjóstormur...úfff...það verður notalegt að hjóla heim :)
Framundan... er lærdómur, svefn og Gumball á föstudaginn, það líkist Babtism sem var á seinustu önn ef einhverjir hafa heyrt sögusagnir af því. Við förum á ákv. stöðvar á víð um dreif um borgina...sem eru allt barir og þar er maður látinn drekka... sagt er að 18 af 100 hafi komist á endastöð síðast! Allavegana, hljómar gaman ....húfff...
Kanika er líka hress, hún nagaði í sundur internet og símasnúruna mína um páskana bannsett, hún er alveg að flippa blessuð, búin að naga í sundur heilu lufsurnar af veggfóðri í stofunni... ég setti sófann bara fyrir og vona að landlordinn sjá þetta ekki hehe...´
jæja hafið það gott rúsínurnar mínar, bæ í bili!!!
XXX
slóvakíumyndir
Þar sem pensílín hrúgur er að hressa mig við að mér finnst ákvað ég að setja inn eitthvað af Slóvakíu myndum, það hitar manni allavega um hjartarætur ;)... þó svo að hún hafi sennilega komið þessari pest af stað, en þá er það nú vel þess virði :)
Hér er linkurinn inn á myndasíðuna mína:
http://picasaweb.google.com/Thurapura/SlVakAFebruar2008
Var á spítalanum áðan og fékk að taka X ray myndina mína með heim, rosa fín, ætla að ramma hana inn!!!
Erum byrjuð að krafsa í okkar eigin líkum í anatomíu, ég þurfti að skinnfletta handlegginn á gamalli konu síðast, mér líður eins og ég sé hluti af einhverju frumbyggja culti að fara að gera einhverja seremóníu, þetta er eiginlega hrikalega ógeðsleg þegar maður hugsar til þess...
Janúarfrís myndir :)
Skóli og Slóvakía
| Jæja þá er skólinn byrjaður á fullu aftur... Búin að vera í frí síðan ég kom út nánast svo það er erfitt að komast í gang. Gisti eina nótt ú Búdapest þegar ég kom og slæptist smávegis þar, gaman að vanda, fór svo á miðvikudeginum til Slóvakíu í skíðaferð og var í 5 daga. Það var hin mesta snilld... Ofsalega fallegt, Gott skíðafæri, glampandi sól, ódýr og góður matur, vatnið jafnvel betra en það íslenska...ohh þetta var algjer afslöppun... ég í plóg í barnabrekkunni...í súkkulaðinu með romminu og í saunu að loknum degi :) |







